top of page

VIÐSKIPTAVINIR

Axel Óli Ægisson viðskiptavinur í Grímsnesi

 

"Í lok sumars 2014 tók ég til notkunar varmakút  í sumarbústað í Grímsnesi. Bústaður þessi er á hitaveitu þar sem keyptur er aðgangur að 3 ltr/mín. Það er skemmst frá því að segja að ábatinn af þessari viðbót kom strax í ljós þar sem þrýstingur á heitu neysluvatni jókst til muna og varð sambærilegur á við þrýsting á köldu vatni. Þetta var mikil bragarbót frá þeim litla þrýsting sem 3 ltr/mín veita.

Þessi jafni þrýstingur á milli heits og kalds vatns gerir alla notkun þægilegri og öruggari (mikil aukning á þrýstingi getur valdið vatnsskvettum), mun þægilegri heldur en ég á að venjast í þéttbýli.

Bústaðurinn er í mikilli notkun jafnt sumar og vetur og þessi hitakútur hefur aukið gæði íverunnar mikið og eftir 5 mánaða notkun hafa engir vankantar á þessari viðbót litið dagsins ljós"

bottom of page